you're the right kind of wrong..
Jahá! það er ekkert annað...maður er að fara að blogga, loksins eftir mánuð og sjö daga!
svona er þetta þegar leiðindin eru í hámarki! Er að bíða eftir að Móðir vor verði tilbúin að taka próf í tölvunni, hún er alltaf svo stressuð að hún ýti á einhvern takka og allt þurrkist út eða eitthvað, svo að eg þarf að sitja yfir henni =) hehe
Annars er ekkert mikið að frétta held eg, nema að það eru að koma JÓL!:D
er málið í ár...kemur manni í rétta jólaskapið ;D eða fyrir þá sem kæra sig um það! alltaf verið að skamma mig þessa dagana "Hófý! jólin eru ekkert að koma strax!!" hey fólk...það eru sko bara 35 dagar í þau! ég er að fara að gera laufabrauð um helgina og allt sko! Svo er kallinn í Áshlíðinni búinn að skreyta, stjörnurnar eru komnar á ljósastauranna! ALLT AÐ KOMA! svo svona fyrir þá sem ekki vita þá vil ég fá Mörgæs í jólagjöf...já eða bara machintosch bauk =)
Annars er skólinn bara að ganga sinn vanagang, er orðinn hæfilega þreytandi svona eins og gengur og gerist þegar líða fer á nóvembermánuð! Prófin koma eftor 10 daga...ég er í 7 prófum! 2svar í 2 prófum á dag...en ég er búin 12. des svo þetta ætti að vera í lagi :) get ekki beðið eftir að liggja bara í leti, borða súkkulaði, lesa bók, labba í snjónum, hafa arineld...mmmm, ég eelska jólin!
En jæja, móðir er orðin ready fyrir prófið, wish her luck :D
-Hófý Jólabarn =)
6 athugasemdir










